Schengen samkomulagið og SIS upplýsingakerfið - stutt yfirlit (frá 2007 *)

SIS-Ísland SchengenAgreement_map Öll núverandi ESB lönd auk Íslands, Noregs, Búlgaríu, Rúmeníu og Sviss eru þátttakendur í Schengen samkomulaginu. Alls eru þetta 30 lönd.

Í Schengen samkomulaginu felst möguleikinn á niðurfellingu innri landamæra og víðtækt samstarf landanna m.a. á sviði lögreglumála, landamæravörslu, vegabréfsáritana o.fl.

13 aðildarlönd ESB auk Íslands og Noregs hafa fellt niður svokölluð "innri landamæri" sín á milli og hvert þátttökuland sér um að gæta "ytri landamæra" Schengen svæðisins.  Bretland og Írland hafa kosið að halda sínum landamærum enn sem komið er.

Norðurlöndin 5 urðu hluti af Schengen svæðinu þann 25. mars 2001 og hófu þá gæzlu ytri landamæra svæðisins.  Þetta gerðist eftir ítarlegar úttektir nefnda á vegum Schengen samstarfsins, sem beindust að sviðum eins og landamæravörslu á flugvöllum og höfnum, lögreglusamvinnu, persónuverndarmálum og tölvu- og upplýsingakerfum.

Ein af helstu forsendum niðurfellingar innri landamæra er Schengen upplýsingakerfið, SIS. Í núverandi SIS kerfi eru skráðar upplýsingar um einstaklinga, sem eru eftirlýstir af ýmsum orsökum, um einstaklinga frá löndum utan Schengen svæðisins, sem hefur verið bönnuð endurkoma á svæðið, og upplýsingar stolna og týnda muni (þar eru skráningar á stolnum og týndum skilríkum flestar eða ríflega 11 milljón skráningar af um alls ca. 16 milljón færslum í SIS grunninum).

Sjá grein um Schengen samkomulagið og Schengen upplýsingakerfið eftir Vigfús Erlendsson í Tölvumálum (bls. 8-15) *, tímariti Skýrslutæknifélags Íslands - Október 2000 - 4. tbl. - 25. árg.    (greinin á PDF formi) * (greinin á Word formi)

Á vegum Framkvæmdastjórnar ESB og í samstarfi við aðildarlöndin er unnið er að þróun annarrar kynslóðar kerfisins, sem kölluð er SIS-II.  Upphaflega átti SIS-II að fara í gang í apríl 2007, en tafir hafa orðið á þróun þess þannig að líklega verður SIS-II í fyrsta lagi komið í gagnið í árslok 2008.
Portúgalir, sem munu fara með formennsku í ESB á síðari hluta árs 2007 hafa haft frumkvæði að því að bjóða hinum nýju aðildarlöndum ESB N(ational).SIS hugbúnað sinn og ýmsa tæknilega og verkefnisstjórnunaraðstoð. Framtakið, em hefur verið kallað SISone4all var samþykkt af ráðherraráði dóms- og innanríkisráðherra ESB m.m. í desember sl. og á það að gera hinum nýju aðildarlöndum kleift að tengjast SIS kerfinu þegar haustið 2007 og fella niður innri landamæri fyrr en ella.

Sjá ýmsar frekari upplýsingar hér:  
http://ec.europa.eu/justice_home/fsj/police/schengen/fsj_police_schengen_en.htm
http://ec.europa.eu/justice_home/doc_centre/police/schengen/doc_police_schengen_en.htm

http://europa.eu/scadplus/leg/en/lvb/l33183.htm
http://www.consilium.europa.eu/cms3_fo/showpage.asp?id=1199&lang=en&mode=g
http://www.consilium.europa.eu/cms3_fo/showPage.asp?id=473&lang=en&mode=g
http://europa.eu/pol/justice/index_en.htm
http://www.consilium.europa.eu/uedocs/cmsUpload/Cat.Sch.Vol.2EN.pdf

http://en.wikipedia.org/wiki/Schengen_Agreement
http://en.wikipedia.org/wiki/Schengen_Information_System 

Skipulag nefnda Schengen samstarfsins hjá skrifstofu ráðherraráðs ESB:  Skipulag nefnda Schengen samstarfsins

 

[12.9.2010:  *) Bætt við ]


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband